Handkastið - Uppgjör fyrri hluta Olís-deildar karla og Seðillinn kom í spjall

Published: Dec. 6, 2018, 10:57 p.m.

Í þættinum að þessu sinni fóru Sérfræðingurinn og Ponzan yfir fyrri hluta Olís-deildar karla sem hálfnuð er, ásamt góðvini þáttarins, Árna Stefáni Guðjónssyni. Farið var yfir hvert lið vel og vandlega. Farið var yfir gengi liðanna og spáð var í spilin fyrir seinni hlutann. Einnig var valið úrvalslið fyrri umferðarinnar. Í lok þáttarins kom Siggi Seðill, markvörður Stjörnunnar í létt spjall og fengu hlustendur að spyrja hann spjörunum út. 12. umferðin í Olís-deildinni hefst á laugardaginn og lýkur á mánudagskvöldið. Stuðlarnir eru komnir inná Coolbet og farið var yfir bestu stuðlana á landinu.