Handkastið - Haukur og Haukar á eldi og Þrefaldur GústiJó

Published: May 1, 2019, 11:56 a.m.

Ásbjörn Friðriksson spilandi þjálfari FH er gestur Handkastsins í þessum þætti. Í þættinum fórum við yfir úrslitaeinvígið hjá stelpunum þar sem Valsstelpurnar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á sunnudaginn eftir 3-0 sigur á Fram. Einnig fórum við yfir undanúrslitaleikina karlamegin sem fóru fram í gærkvöldi. Í lokin tókum við stutt spjall við Ásbjörn um tímabilið hjá FH. Þátturinn er í boði BK Kjúklings.