Handkastið - Gjaldþrot í Eyjum, Hver er Einar Birgir? RúnarsKáraHornið, Tom velur draumalið

Published: Nov. 22, 2018, 10:19 p.m.

Gestur þáttarins að þessu sinni var þáttastjórnandi Seinni Bylgjunnar á Stöð2Sport, Tómas Þór Þórðarson. Í þættinum var farið yfir tvo síðustu leiki 9. umferðar í Olís-deild karla, Evrópuleik Selfyssinga sem fram fer á laugardaginn. Einnig fórum yfir stöðuna í Olís-deild kvenna sem er komin í jólafrí. RúnarsKáraHornið var á sínum stað og þá valdi Tom draumalið leikmanna sem gætu farið út í atvinnumennsku eftir tímabilið. Stuðlarnir fyrir næstu umferð í Olís-deild karla eru komnir inn á Coolbet og fórum við yfir stuðlabergið. Að lokum völdum við einnig Coolbet leikmann umferðarinnar.