Hákon Daði á eldi í 2. deildinni og EuroLalli með Jólasmell

Published: Dec. 9, 2019, 11:28 p.m.

Í þættinum er farið yfir 13. umferðina í Olís-deild karla ásamt því að EM-leikur Handkastsins í samstarfi við Coolbet var kynntur. Davíð Örn Atlason er gestur þáttarins en hann skoraði 18 mörk í síðasta handboltaleik sínum á ferlinum í leik með Víkingi í 3.flokki B. Hákon Daði Styrmisson gerði gott betur um helgina og skoraði 20 mörk með ÍBV U í 2. deildinni og alls 24 mörk sama dag. Athyglisvert í meira lagi. Þátturinn er í boði Handkastsins.