94. Þáttur - Late game execution !

Published: June 2, 2021, 1:48 a.m.

1.leikdagur Undanúrslita + Leikur 2 kvennamegin. 

Eftir svakaleg 8 liða úrslit erum við farin af stað með undanúrslitin sem verða klárlega svakaleg ! Þórsarar hitta illa á heimavelli og Geitungurinn með súperstjörnutakta í Höfninni. Úthvíldir Keflvíkingar halda áfram að sækja á sína styrkleika þegar mest er undir og klára leikinn gegn baráttuglöðum en mögulega of villtum KR-ingum. Hvað gerðu Haukarnir vitlaust á lokametrunum í Ólafssal ? .. Við förum yfir leikina og spáum í spilin fyrir framhaldið. Mun liðsheild Stjörnunnar halda áfram að ,,outplaya,, Þórs kjarnann ? Geta KR-ingar stoppað of mörg sniðskot Keflavíkur ? ... Allt þetta og auðvitað umræður um RISASTÓR félagaskipti sem hafa átt sér stað síðustu 2 daga. Endalínan í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani beint úr WhiteFoxStofunni á PodcastStöðinni !