90. Þáttur - KörfuboltaSkák !

Published: May 20, 2021, 2:24 a.m.

Kæru hlustendur , þá eru sérfræðingarnir að sunnan mættir enn einu sinni á Endalínuna og fara í allt það helsta úr leikjum 2 í 8 liða úrslitunum. Þegar Stólarnir eru loksins farnir að stoppa þá vantar sóknina , Keflavíkurlestin í hægagangi en nær samt í sigra , Grindavík með sterkan sigur gegn pirruðum Stjörnumönnum , Liðsheildin brást Lalla og Co , Basile er mikilvægur og Stríðið um Reykjavíkurborg íþróttaviðburður ársins ! Geta Stólar stoppað the Big3 ? Hafa meiðsli áhrif á Stjörnuna ? Er villureglan á villigötum ? Hver á að græða á lokasek leiksins ? 

Allt þetta og svo miklu meira á Endalínunni í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani !