89. Þáttur - Ballið er byrjað !!

Published: May 17, 2021, 1:04 a.m.

Kæru hlustendur - þá er þetta farið af stað ! ÚRSLITAKEPPNIN er mætt í öllu sínu veldi og förum við yfir fyrstu leikina í 8 liða úrslitunum. Sloppy Keflvíkingar ennþá of góðir fyrir Stólana , Stjarnan skein bjartar í MGH , Græni Drekinn peppaði sína menn í forystu í Höfninni og LEIKUR ÁRSINS til þessa kórónaði svo þessa fyrstu leiki í 8 liða með alvöru stríði í Origo. Ætlar Tomsick bara að pakka saman ? Geta Grindvíkingar sýnt sama hjarta fullmannaðir ? Verður Basile difference maker ? Hafa Valsmenn orku í marga svona leiki ? 

Endalínan kafar í þetta allt saman auðvitað í boði Kalda , White Fox og Cintamani á PodcastStöðinni !