Kæru hlustendur - Endalínan er mætt beint úr White Fox stofunni og gerir upp frammistöðu leikmanna eftir fyrstu 10 umferðirnar. Við tökum fyrir MVP´s hjá hverju liði - það er mikilvægasti hlekkurinn í hverju liði. Við veljum síðan 5 manna All - Star lið og 5 manna vonbrigðalið sem þyrfti að fara í Cintamani og fá sér hlýja flík fyrir seinni hluta tímabilsins. Skemmtilegar umræður og skiptar skoðanir. Ekkert betra en að fá smá körfuboltaspjall með sér inní helgina í landsleikjahlé. Í lokin tökum við svo léttar umræður um aðal umræðuefnið í íslenskum körfubolta í dag , Heimildarmyndina Hækkum Rána og þjálfarann Brynjar Karl Sigurðsson. Allt þetta í boði Kalda Bruggsmiðju , WhiteFox og Cintamani auðvitað á PodcastStöðinni , Bestu Stöðinni. #Endalinan #Kaldi #WhiteFox #Cintamani