62. Þáttur - Rifrildi og Sleggjudómar

Published: Jan. 23, 2021, 2:03 a.m.

Það var heldur betur nóg af heitum umræðuefnum eftir þessa umferð í Dominos Deild Karla. Virkilega áhugaverðir leikir í þessari umferð sem endaði síðan með El Clasico í Ljónagryfjunni. Það má segja að Endalínumenn hafi ekki verið sammála í þetta skiptið um ákveðin atriði en svona er jú körfuboltinn. Mjólkurmaðurinn óstöðvandi , Vængbrotið Stjörnulið , Small Ball vann sóknarstríðið í Vesturbæ og KP8 á eldi með Grindavík. Allt það helsta , öll stóru atriðin og auðvitað Kalda spurningin á sínum stað. Getur Small Ball unnið titilinn , er Tomsick rétti maðurinn fyrir Tindastól ? Þessu er svarað á Endalínunni í boði Kalda og White Fox.

#Endalinan #Kaldi #WhiteFox #PodcastStodin