61. Þáttur - Síkið í ljósum LOGA !

Published: Jan. 19, 2021, 4:24 p.m.

Það er stutt á milli stríða þessa dagana , veislan heldur áfram og það fer ekkert framhjá neinum að deildin er farin af stað aftur , það er flugeldasýning nánast á hverju kvöldi. Endalínan gerir upp 3.umferðina að venju beint úr WhiteFox Stofunni. Sjóðheitir ÍR-ingar , dósasöfnun á Austurlandi , Suðurlandsskjálfti í höfninni , Allt er fertugum fært og það var persónulegt stríð í Origo. Frábær umferð að baki og nóg um að ræða. Ætlar Tindastóll að fara spila einhverja vörn ? Eru Hattarmenn númeri of litlir enn eitt skiptið í efstu deild ? Þetta og svo miklu miklu meira eins og alltaf á Endalínunni í boði Kalda Bruggsmiðju og WhiteFox á Podcaststöðinni.

#Endalinan #Kaldi #WhiteFox