59. Þáttur - LOKSINS ! LOKSINS !

Published: Jan. 11, 2021, 9 a.m.

Kæra Körfuboltafjölskylda , það er komið að þessu - Aftur á parketið , AFTUR ! 

Eftir góðar fréttir sl. föstudag er ljóst að við getum hafið keppni að nýju í boltanum hérna heima. KKÍ hefur gefið út nýtt leikskipulag fyrir komandi mánuði og búið að þétta þetta ansi mikið og lengja tímabilið fram á mitt sumar. Endalínan kom saman í WhiteFox stofunni og heyrðum við í mótastjóra KKÍ , Snorra Erni , og spurjum hann útí síðustu mánuði og hvernig þetta hefur allt komið heim og saman og hvaða svigrúm er til staðar ef frekari frestanir verða. 

Við förum yfir leikina í næstu umferð sem fram á fimmtudag og föstudag og rýnum í breytingar sem hafa orðið á liðunum og hvernig við sjáum þetta fyrir okkur á nýju ári eftir rúmlega 3ja mánaða pásu. 

Eins og áður er þetta allt saman í boði Kalda Bruggsmiðju og Nicoland.is . 

#Endalinan #Kaldi #WhiteFox #PodcastStodin