155. Þáttur - Sannleikurinn er sagna bestur

Published: Nov. 5, 2022, 1:53 a.m.

Kæru hlustendur Endalínunnar , sjaldan koma öll kurl til grafar en við gerum okkar bestu tilraun.

Eins venjan er mættum við í Rebbagrenið og fórum yfir hlutina eftir 5.umferðina og þá síðustu fyrir landsleikjahlé. Tímarnir breytast og mennirnir með en Endalínan breytist ekkert og fer yfir landslagið í deildinni eins og vanalega. Öll vötn renna til sjávar og við förum yfir allt það helsta úr umferðinni og þema þáttarins er að sjálfsögðu íslenskir málhættir og orðatiltæki. Glymur hæst í tómri tunnu ? Adam var ekki lengi í Paradís og fleiri séríslenskir frasar eru tengdir leikjunum 6 ásamt því að frétt vikunnar , Viking Lite spurningin og aðrir liðið eru á sínum stað. 

Endalínan í boði , pallettunnar Rauður Grænn og Blár , Viking Lite og Cintamani , Við þekkjum tilfinninguna.