146. Þáttur - What goes around comes around ! ( Úrslit - Leikdagur 3 )

Published: May 13, 2022, 6:33 a.m.

Endalínan mætti í WhiteFox stofuna nánast í áfalli eftir eftir ótrúlegan körfuboltaleik þar sem Valsarar snéru afar erfiðri stöðu sér í vil á stuttum tíma í seinni hálfleik og unnu Tindastólsmenn sem voru í dauðafæri að komast í kjörstöðu áður en serían fer aftur í Skagafjörðinn. 

Valur 2 - Tindastóll 1 

- Leikur tveggja hálfleika , ótrúlegar sveiflur

- Hraðaupphlaupsstigin telja mikið að lokum

- Óskynsemi eða villtur leikstíll getur unnið leiki en líka kastað leikjum frá þér

- JB í feluleik , ekki nóg að vera bara hetja á móti 40+ leikmönnum

- Calloway sagði bara TAKK , hvað er 5 manna liðið hjá Val sem býr til mest vesen ?

- SKOTAVAL !!!

Já við ræðum þennan magnaða leik fram og tilbaka ásamt föstum liðum og drögum svo út vinningshafa í ENDALÍNULEIKNUM þar sem heppinn hlustandi fær að þekkja tilfinninguna. 

Endalínan , þitt körfuboltahlaðvarp í boði WhiteFox - Cintamani - VikingLite - KefRestaurant & Diamond Suites