112. Þáttur - Sókn vinnur leikir , vörn vinnur titla !

Published: Oct. 23, 2021, 9:41 a.m.

Kæru hlustendur , Endalínan er orðin fullmönnuð að nýju og er mætt beint úr WhiteFox Stofunni til þess að gera upp 3.umferðina í SubwayDeild Karla. Þetta fer virkilega skemmtilega af stað en það er augljóst að sum liðin eru að finna töluvert betri takt og nokkrir sterkir leikmannahópar á blaði eru bara langt því frá að vera spila á réttu leveli. Hvað er að gerast í Garðabænum ? Ætla Blikar að spila vörn í vetur ? Er Danni búinn að finna rétta kanann ? Hversu góður er Lalli að finna leikmenn sem fitta inn ? Okeke upgrade á Dean ? .... Já það eru allskonar spurningar sem við höfum og Endalínan fer að sjálfsögðu í alla leikina og öll stóru málin eins og vanalega. Spurningin er auðvitað á sínum stað ásamt fróðleikshorninu og svo tökum  við nokkra umræðupunkta frá ykkur hlustendum og kryfjum málin ennþá betur. 

Endalínan í boði WhiteFox , Viking Lite , Cintamani og KefRestaurant&DiamondSuites