108.Þáttur - Fáni á vegginn !

Published: Sept. 19, 2021, 11:57 p.m.

Kæra Körfuboltafjölskylda , þá er loksins búið að krýna Bikarmeistara 2021 !! 

Þó þessi Bikarkeppni hafi verið á öðrum tíma en vanalega þá vantaði ekkert uppá skemmtanagildið og stemninguna í Smáranum þegar Njarðvík og Haukar urðu Bikarmeistarar. Við förum yfir báða leikina og tökum fyrir frammistöður liðanna. Getur Helena Sverris tapað titli í vetur ? Er Græna Hjörðin búin að rísa upp frá dauðum aftur ? Er Robert Turner rétti maðurinn fyrir Stjörnuna ? Eru bara gull og grænir skógar framundan fyrir Benna og ACB strákana í vetur ? 

Já Endalínan fer vel yfir þessa Bikarhelgi beint úr WhiteFoxStofunni ásamt því sem við förum að sjálfsögðu í VikingLite spurninguna og Fróðleikshornið í boði Kef Restaurant . 

Endalínan í boði WhiteFox - Cintamani - Viking Lite - Kef Restaurant & Diamond Suites