103. Þáttur - Þögnin óbærileg - Money talks !

Published: July 16, 2021, 3:02 a.m.

Kæru hlustendur , Endalínan er komin tilbaka eftir smá sumarpásu til að hvíla lúin bein eftir ótrúlegt tímabil. Hvað er að gerast í boltanum hérna heima ? Blekið þornar varla á sumum stöðum á meðan það er algjör þögn á öðrum bæjum. Stólarnir eru ekkert að grínast og horfa bara í efstu hilluna , Halldór Garðar í Keflavík , hvað geriri Dean ? Geta Þórsarar sett saman lið sem á sjéns á að verja titilinn ? Við förum létt yfir þær breytingar sem nú þegar hafa orðið á liðunum í deildinni , hvaða áhrif hafa þessar breytingar og svo veltum við nokkrum steinum þar sem gatan hefur lumað að okkur slúðursögum sem við tökum að sjálfsögðu enga ábyrgð á. Endalínan á sínum heimavelli í WhiteFoxStofunni í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani !