102. Þáttur - Simply The Best !

Published: June 26, 2021, 6:47 p.m.

Þór Þorlákshöfn - Íslandsmeistarar 2021 !! 

Já kæru hlustendur það var heldur betur kátt í Icelandic Glacial Höllinni í gær þegar Leikur 4 í Lokaúrslitum fór fram ! Þórsarar urðu 7.liðið í sögunni til þess að vinna Íslandsmeistaratitilinn eftir úrslitakeppni og það var gjörsamlega grátið af gleði. Hvað gerir þetta Þórs lið svona gott ? Afhverju bognuðu Keflvíkingar þegar mest á reyndi ? ... Við förum yfir allar helstu sögulínurnar úr þessum fjórða leik og skoðum frammistöðu og taktískar pælingar liðanna - Spacing Þórsara , PnR Keflvíkur of hægt , Hógvær Lárus , Dabbi Kóngur , Drungilas , Hössi , Milka , Rulluspilarar .... Já við förum í þetta allt saman í lokaþættinum okkar á þessu leiktímabili sem hefur verið alveg magnað ásamt því að heyra í MVP Endalínunnar , Styrmi Snæ Þrastarsyni !

 Allt þetta í boði Kalda , WhiteFox og Cintamani !!