Vitar, Dans, McEwan og Kongshaug

Published: Nov. 7, 2019, 4:05 p.m.

Í Víðsjá í dag verður meðal annars fjallað um nýja heimildamynd, Ljósmál, sem fjallar um vita á Íslandi og frumsýnd verður í Bíó Paradís á laugardag. Gestir þáttarins verða Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Vitafélagsins, og Guðmundur Bernódusson, sem var vitavörður á Galtarvita. Björn Þór Vilhjálmsson, bókmenntagagnrýnandi, fjallar í dag um skáldsöguna Vélar eins og ég, eftir breska rithöfundinn Ian McEwan, en hún kom nýlega út í íslenskri þýðingu Árna Óskarssonar. Víðsjá minnist einnig norska upptökustjórans Jans Eriks Kongshaug sem andaðist í fyrradag en hann stofnaði á sínum tíma hið fræga og rómaða Regnboga-hljóðver í Osló. Og Ragnheiður Gyða Jónsdóttir heldur áfram að fjalla um dans og mannkynssögu. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson.