Grímur Thomsens, viðsnúinn Bach, Eggert Péturson og Merete Pryds Helle

Published: May 19, 2020, 4:05 p.m.

Í Víðsjá í dag verður þess meðal annars minnst að á föstudag, þann 15. maí síðastliðinn, voru 200 ár liðin frá fæðingu skáldsins Gríms Thomsens. Gestur þáttarins af því tilefni verður Kristján Jóhann Jónsson bókmenntafræðingur. Sunna Ástþórsdóttir fjallar um heimildarmyndina „Eins og málverk eftir Eggert Pétursson“ sem fjallar eins og nafnið gefur til kynna um listmálarann Eggert Pétursson og verk hans. Viðsnúin listaverk koma við sögu í þættinum í dag að gefnu tilefni. Og bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni er skáldsagan Það sem að baki býr eftir danska rithöfundinn Merete Pryds Helle en sagan kom út í íslenskri þýðingu Magneu J. Matthíasdóttur árið 2018. Magnea segir frá verkinu í Víðsjá í dag. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson