Gilbert & George

Published: Sept. 17, 2020, 4:05 p.m.

Víðsjá í dag verður helguð breska myndlistardúóínu Gilbert and George sem hafa unnið að list sinni saman síðan á sjöunda áratug síðustu aldar og haft mikil áhrif á ýmsa þá sem hafa komið í kjölfarið, en sýning á verkum þeirra er nú uppi í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Gestir þáttarins verða myndlistarmennirnir Ilmur Stefánsdóttir, Eirún Sigurðardóttir úr Gjörningaklúbbnum og Ragnar Kjartansson. Lesarar í þættinum eru Gunnar Hansson og Leifur Hauksson. Umsjón Guðni Tómasson