Ari Eldjárn, Dalalæða, Misirlou

Published: Jan. 4, 2021, 4:05 p.m.

Í Víðsjá í dag verður meðal annars rætt við Ara Eldjárn, uppistandara og handritshöfund, sem hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin fyrir árið 2020, Ari tók við verðlaununum á Bessastöðum um helgina. Rætt verður við Hannes Helgason og Jóhannes Birgi Pálmason, liðsmenn í sveitinni Dalalæðu, um nýja plötu sveitarinnar Dysjar. Einnig verður farið í tónlistarferðalag með Arnljóti Sigurðssyni undir yfirskriftinni Heyrandi nær, í dag mun Arnljótur rýna í sögu lagsins víðfræga Misirlou, en saga þess nær um það bil hundrað ár aftur í tímann og margt forvitnilegt sem kemur upp úr dúrnum við söguskoðunina. Umsjón: Guðni Tómasson og Eiríkur Guðmundsson