Áfallalandslag, Ragnar í Mílanó, Oleanna og fornleifar

Published: Sept. 22, 2020, 4:05 p.m.

Í Víðsjá í dag verður meðal annars haldið í heimsókn í Listasafn Reykjanesbæjar og rætt við nýjan safnstjóra safnsins, Helgu Þórsdóttur, sem tók við rekstri þess fyrr á árinu. Þar er nú uppi sýningin Áfallalandslag en á henni eiga verk Ósk Vilhjálmsdóttir, Halldór Ásgeirsson, Rannveig Jónsdóttir og Gjörningaklúbburinn. Listasafnið hefur nýverið stækkað nokkuð þegar annar salur var tekinn undir samtímamyndlist þar á bæ. Hugað verður að listaverki eftir Ragnar Kjartansson í kirkju einni í Mílanó. Leiklistargagnrýni: Snæbjörn Brynjarsson segir hlustendum skoðun sína á leikritinu Oleanna eftir David Mamet sem er fyrsta frumsýning Borgarleikhússins á nýju starfsári. Þjóðminjasafnið verður einnig heimsótt í þættinum en þar er sýningin Saga úr jörðu nú uppi. Hrönn Konráðsdóttir fornleifafræðingur segir fá sýningunni sem að rekur sögu fornleifarannsókna á Hofsstöðum í Mývatnssveit. Fjallað um bók vikunnar sem er endurtekin - Farenheit 451eftir Ray Bradbury. Þórdís Bachmann segir frá bókinni (endurtekið)