Jóhann Hjálmarsson, Midpunkt, Dyrnar

Published: Dec. 2, 2020, 4:05 p.m.

Víðsjá minnist í dag Jóhanns Hjálmarssonar skálds og gagnrýnanda en hann andaðist í síðustu viku, áttatíu og eins árs að aldri. Jóhann gaf á sínum tíma út átján ljóðabækur, sú fyrsta, Aungull í tímann, kom út árið 1956, þegar Jóhann var aðeins sautján ára gamall. Jóhann var mikilvirkur ljóðaþýðandi og starfaði sem menningarblaðamaður á Morgunblaðinu áratugum saman. Hlustendur heyra brot úr viðtölum við Jóhann í þættinum í dag, auk upplestra, en einnig er rætt við rithöfundinn Jón Kalman Stefánsson um höfundarverk Jóhanns. Einnig verður í þættinum í dag farið í Hamraborgina í Kópavogi þar sem gallerí Midpunkt er til húsa. Í galleríinu hafa þau Ragnheiður Sigurðardóttir og Snæbjörn Brynjarsson síðastliðin tvö ár miðað að því að færa listina nær fólkinu, nær hversdagsleikanum. Rætt verður við Ragnheiði um rekstur listrýmis í Kópavogi og sýningin Secret Services, leyniþjónustan, skoðuð, en þetta er fyrsta einkasýning Rúnars Arnar Jóhönnu- og Marínóssonar. Og bók vikunnar á Rás 1 að þessu sinni kemur frá Ungverjalandi. Það er skáldsagan Dyrnar eftir ungverska rithöfundinn Mögdu Szabó sem kom út fyrr á þessu ári í íslenskri þýðingu Guðrúnar Hannesdóttur. Þetta er óvenjuleg og áleitin saga um samband tveggja kvenna, bók sem vakti gríðarlega athygli þegar hún kom fyrst út árið 1987, hefur verið þýdd á mörg tungumál, og hlotið verðskuldað lof og verðlaun. Bókin var meðal annars kjörin ein af tíu bestu bókum ársins 2015 af bandaríska stórblaðinu The New York Times. Umsjón: Eiríkur Guðmundsson